Völuteigur 6, 270 Mosfellsbær
74.700.000 Kr.
Atvinnuhús/ Lager - Iðnaðarhúsnæði
4 herb.
259 m2
74.700.000
Stofur
3
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
3
Inngangur
Sér
Byggingaár
1962
Brunabótamat
54.300.000
Fasteignamat
54.200.000

STOFN Fasteignasala og Benedikt Lgf. 661 7788 kynna: Í einkasölu afar glæsilegt og vandað 260 fm. atvinnuhúsnæði - íbúð - hoppy aðstöðu á tveimur hæðum við Völuteig 6. 270, Mosfellsbær.

Um er að ræða glæsilega íbúð á efri hæðinni: Gengið upp stiga með fallegu handriði í kringum stiga opið. Eldhús/ stofa er bjart rými, risa eyja í eldhúsi með góðu vinnuplássi, vandaðar innréttingar, parket á gólfi. Möguleiki er að setja svalarhurð út á svalir frá stofunni. Stórt og mikið op er á milli hæðanna, með vönduðu handriði með lýsingu yfir opinu á milli efri og neðri hæðar. Gengið er með fram opinu á milli hæðanna ( brú ) inn í mjög stóra hjónasvítu með stóru fataherbergi og einstaklega glæsilegu baðherbergi stór sturta, hert gler, falleg innrétting, flísalagt á gólfi og að mestu leiti á veggjum. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara innan baðherbergisins. Neðri hæðin er með afar glæsilegu eldhúsi og bar og flottar lýsingar, tvö salerni annað þeirra með möguleika á sturtu aðstöðu, stofa/ sjónvarpsrými. Þar innaf er góð geymsla.  

Pantið tíma fyrir skoðun. Upplýsingar gefur Benedikt Ólafsson Lgf. sími: 661 7788 eða sendu á Netfangið: [email protected]

Eignin skiptist í.
Neðri hæð: Hol, sérinngangur og innkeyrsluhurð, tvö salerni, ræstikompa, eldhús, borðstofa, vínbar, stór stofa, innaf stofu er góð geymsla.
Efri hæð:  Gengið upp stiga, eldhús, eyja með borðaðstöðu, stofa, gangur sem hægt er að horfa niður á neðri hæðina, stórt herbergi, fataherbergi og baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. 


Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Inngangur/ hol: Komið er inn í opið rými/ hol með stórum fataskáp. Neðri hæðin er með 3m. lofthæð og er gólfflötur um 135 fm. á stærð. 
Eldhús: Er opið með stórt borðstofu rými, einstaklega falleg nýleg innrétting.
Bar: Fallegur bar með innbyggðum upplýstum hillum með fallegri eyju.
Stofa: Mjög rúmgóð stofa sem hægt er að setja upp risa skjávarpa.
Geymsla: Innaf stofu er mjög rúmgóð geymsla með hurð inn í sameiginlegan gang ( neyðarútgangur ).
Salerni: Tvö salerni eru á neðri hæðinni, annað salernið er með aðstöðu fyrir ræstidót ( ræstikompa ).

Efri hæð:
Stigi: Gengið upp stiga úr stáli á efri hæðina með fallegu gler handriði í kringum stiga opið.
Stofa: Rúmgóð björt stofa parket á gólfi, frá stofu er útgengi á suðursvalir.
Eldhús: Fallegt nýlegt eldhús með stórri eyju, span helluborði, mikið vinnupláss og aðstöðu til að sitja við.
Gangur: Skemmtilega hannaður gangur sem hægt er að horfa niður á neðri hæðina með fallegu handriði í kringum opið. 
Hjóna svíta/ svefnherbergi: Fyrir innan gangsins er einstaklega stórt svefnherbergi með fataskápum og stórt fataherbergi fyrir innan svefnherbergið, parket á gólfi.
Baðherbergi: Nýlegt glæsi baðherbergi með fallegri innréttingu, mjög stór sturta með fallegum glervegg með hertu gleri. Sturtan er tveggja manna sturtu aðstaða, upphengt salerni, fallegar flísar á veggjum og gólfi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara innan baðherbergis.

Um er að ræða einstakt drauma húsnæði fyrir listafólkið, einstaklinganna sem eru með lítil fyrirtæki eða fyrir þá sem eru með áhugamál fyrir fyrirferðamiklum hlutum þá er þetta án efa draumahúsnæðið ykkar. Stórt bílaplan fyrir framan eignina.
Glæsilegt húsnæði sem búið er að leggja í mikla vinnu. Auðvelt er að skipta niður í tvö sér rými ef vilji er fyrir því.
Eign með endalausa möguleika, frábær aðstaða góð staðsetning fyrir bíla-áhugamanninn og svo lengi mætti telja.
Ekkert starfandi húsfélag í húsinu að sögn eiganda.

Einstaklega gott húsnæði fyrir listafólk og minni fyrirtæki.


Nánari upplýsingar veitir Benedikt Ólafsson Löggiltur leigumiðlari - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala, sími 661 7788 eða netfang: [email protected]
Sara Margrét Sigurðardóttir. Nemi í námi til löggildingar-  sími: 8220876 eða netfang: [email protected]
Starfsmenn hjá STOFN Fasteignasölu hafa "Heilindi - Dugnað - Árangur að leiðarljósi."

STOFN Fasteignasala ehf. Suðurlandsbraut 10, 108 Reykjavík  Sími: 511-0900  Netfang: [email protected] Vefsíða: stofnfasteignasala.is

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.